Bókhald og bókhaldsþjónusta
Bókhald er stór þáttur í rekstri fyrirtækja og þarf að vera í góðum farvegi. Hjá Grófargili færðu alla almenna bókhaldsþjónustu á því stigi sem þú þarfnast, við getum séð um hluta af því eða um bókhaldið í heild sinni. Þá skiptir ekki máli hvort þú ert einstaklingur, með lítinn rekstur eða umfangsmikinn, við sjáum um það.
Starfsfólk okkar hefur þekkingu á flestum bókhaldskerfum sem eru á markaðnum.
Hjá Grófargili starfar hópur fólks á Akureyri og í Reykjavík með mikla reynslu af færslu bókhalds, uppgjörum, launavinnslu, skráningu, reikningagerð og ýmiss konar bakvinnslu.
- Færsla allra fylgiskjala í fjárhagsbókhald
- Skönnun kostnaðarreikninga í uppáskriftakerfi
- Færsla og eftirlit með sjóðsuppgjörum
- Lánadrottna og birgðarbókhald
- Viðskiptamannabókhald
- Gerð greiðsluseðla
- Almenn afstemming efnahagslykla í fjárhagsbókhaldi
- Útbúa og senda hlutafjármiða
- Útbúa og skila verktakamiðum í árslok
Endilega hafið samband við okkur og kannið hvort við getum átt þátt í að lækka kostnað og bæta vinnubrögð á fjármálasviði fyrirtækis þíns.